þriðjudagur, september 26, 2006

....þá vil ég á það minna....

ég minni á


www.myspace.com/strakovskyhoro


... fyrir þá sem óvart ramba inn á þessa óþekktu síðu....

kv.sveskjan

úr buskanum

lífið er of stutt og of stútfullt af hlutum sem bíða eftir manni
til þess að bíða eftir að hlutirnir komi til manns.


....enn og aftur hef ég komist að því að það eru svo margir hlutir sem eru framkvæmanlegir bara ef maður sekkur sér ekki of djúpt í alla kongulóarvefi heimsins, heldur tekur bara af stað.....


svo mörg voru þau orð....


kv.sigrun

þriðjudagur, september 19, 2006

jú blessaðan

Sutundum er bara ágætt að taka sér einn dag til að hugsa og það hef ég gert í dag.
Hugsa um aðra og hugsa málið, hugsað sinn gang, hugsað og huxað.

Mér finnst það bara ágætt af og til, stundum festist maður hreinlega í manni sjálfum og fer bara hreinlega alltof djúpt. Svo er eins og maður vakni og gefui skít í þetta allt saman og reyni
bara aftur. Ég veit ekki en ég held að þetta sé viðloðandi við bransa nokkurn kennda við tónlist.

En svo var það einn daginn að ungmenni nokkur í Hafnarfirði tóku sig saman, settust upp í bíl og héldu af stað í Rauðagerði. Á leiðinni sóttu þau vin sinn sem beið við vegkantinn og veifaði rauðri öskju. Ungmennin í reiðinni vissu sem vel var að drengur þessi átti afmæli þennan sólríka dag og kváðu upp afmælisraul er hann lauk upp dyrunum. Á leiðinni var rauðka opnuð og kom í ljós hættulega gott súkkulaði sem var kjamsað á áleiðis. Nú, þegar í Rauðagerði var komið, stigu allir út, teygðu skankana og héldu á fyrirlestur þeirra Tyftarfélaga. Það var þar sem það gerðist.........

;)

Merkilegt þegar maður heyrir fólk sem maður kalla atvinnu tónlistarmann, tala um það sama sem maður er alltaf að paufast með; stress, stress og sjálfan sig.
Það var Jim Black sem lauk upp sinni viskuskjóðu á laugardaginn var og kom með gullmola minnar viku....ekki festast við spegilinn og sjá bara þig, lost í trommuæfingum. Mér fannst þetta bara nokkuð góð pæling með spegilinn.

orð mitt til þeirra (okkar!) sem paufast daga langa með hljóðfærið í fanginu eða munninum ;)

spilagleði og ekkert annað.....

þannig er allavega staðan í dag....
bis spaeter


Sigrún

fimmtudagur, september 14, 2006

svo sem

jújú...nú er maður aldeilis komin inn í samfélagið í nærmynd.

þessi bókrolla mun væntanlega lengjast um nokkra sentimetra með árunum en stefnan á bæ þessum er ekki að skrá verslunarferðir og úrslit þunns sjónvarpsefnis, ónei. Heldur að pára niður hvers kyns viðburði svo sem tónleika, grátbrosleg atvik og almennt pauf.


húsið er opið og megi hver krota sem vill

bis spaeter
sigrún