sunnudagur, desember 30, 2007

órit


hér með tilkynnist að blogg þetta hefur lagst í dvala um óákveðinn tíma....

hver veit nema það sofni alveg hinum hinsta svefni eða vakni aftur til lífsins með leysingunum í vor...



alla vega verða ekki fleiri færslur á næstunni. Þið ættuð nú að lifa það af, með jólabókaflóðið nýafstaðið......



s.

mánudagur, desember 24, 2007

jól....og já

já það eru víst þau

eitthvað spilaði maður á hljóðfæri í dag fyrir fólk á förnum vegi.....

annars var hápunktur dagsins jólahald hjá Hjálpræðishernum
sennilega besti aðfangadagur jóla í mínu lífi

gleðileg jólin öll sömul

hátíð fer.....

mánudagur, desember 17, 2007


afrek hinna síðari daga

- gleymdi að borga símreining
- gleymdi að borga skatt
- búin að snúa við sólarhringnum
- keypti ekkert nammi í fríhöfninni, hljó þá en græt nú
- taskan mín kom ekki
- fór ekki úr náttfötunum í dag




.