mánudagur, maí 14, 2007

áfram áfram áfram bílstjóri

jæja þá er það rútan....


við erum sem sagt á ferð á þjóðvegum Bandaríkjanna. Búum í rútu sem hefur klósett, sjónvarp, sófa, ískáp, ristavél og ég veit ekki hvað og hvað. Síðan sofa allir í kojum sem vagga manni í svefn. Vegirnir eru misgóðir en við höfum verið blessunarlega lausar við drastískar bílveikir. Þetta er hið mesta lúxuslíf, maður leggur sig bara á kvöldin og er komin á allt annan stað morgunin eftir. Ekki slæmt það.

Veðrið hefur verið frábært og tónleikar gengið vel....

ég bið að heilsa

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ristavél hvað...;)

Brynja

11:48 e.h.  
Blogger Nikki Badlove said...

...alveg þögn núna...en ég vildi bara kvitta þar sem ég kíki reglulega....góða tónleika í sanfran íkveld...kveðja úr kebblavík....tb

7:20 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home