þriðjudagur, október 10, 2006

um almennt pauf

já....

hef verið að hugsa eins og fyrri daginn..og hef ekki komist að miklu frekar en fyrri daginn.
Maður fleytir sér gegnum uppmálaðan hversdagsleika vikunnar og lendir í alls kyns paufi, misskemmtilegu. En ég styð það. Ef maður næði að æfa öll heimsins likk og tónstiga á einni kvöldstundu væri þetta ekkert spennandi lengur. Hef verið að koma mér í einhvers konar átak í tónstigum og þá lendir maður fyrst í löngum ógöngum og þetta virðist vera bara sagan endalausa en svo dregur einhver upp gardínurnar fyrir mann og ýmislegt kemur í ljós.
Svo er það paufið,....maður fattar að það er ekki til það sem maður ætlaði að nota í kvöldmatinn og pirrast út í bíl í 10/11 og þakkar pent fyrir sovét ( öðru nafni euroshopper) hunangið og svitalyktareyðinn sem eru í alveg eins umbúðum...ekki það að ég noti svitalyktareyðinn í matinn en það fattast í bílnum að sú nauðþurft gleymdist í síðustu bæjarferð.

en þetta eru gullnu kodak mómentin sem gera tilveruna skemmtilegri. Pauf í rigningu með magnara út í bíl, skipulag hver fer með hverjum í bíl, pauf við að ná í alla, allir komnir í bíl á leið á tónleika (allt of sein), og svona mætti telja fram eftir götum landsins.......

ég vona að sem flestir njóti þess paufs og brasks sem fylgir næstkomandi dögum vikunnar.


lifið heil
Sigrún

1 Comments:

Blogger tóta said...

úff já tónstigar taka á. :S en það eina sem hægt er að gera er að bíta á jaxlinn og gera þá aftur og aftur og aftur. og ég mæli með því aðgera þá hææææææææææææææææææææææææææægt. :)

4:35 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home